557-9510 patti@patti.is Bíldshöfða 18, 110
Ný sending frá A l´Olivier

Ný sending frá A l´Olivier

Komin í hús ný sending af æðislegu og sívinsælu vörunum frá franska merkinu A l´Olivier. Olíur, sinnep og fleira dásamlegt gúmmelaði. Kíkið endilega því þær fara alltaf mjög fljótt 😉

Sjáumst í Patta!

Kósí konukvöld í Patta

Kósí konukvöld í Patta

Af því að skammdegið er komið, þá langar okkur í Patta að bjóða vinkonum á kósí konukvold þar sem við kynnum gourmet vörulínu sem okkur langar að gefa ykkur að smakka á. Einnig verða dásamlegir og dömulegir drykkir sem freyða notalega og eitthvað gott í gogginn.

Þriðjudaginn 28. nóvember frá kl. 18-20.

Við ætlum að setja uppáhalds lagalistann okkar í loftið til að stemmningin sé akkúrat eins og við viljum hafa hana.

Auður Eva lífstílsbloggari á mamman.is ætlar að vera með okkur, snappa svolítið og draga þrjá veglega vinninga úr potti sem allar fara í sem versla.

Sjáumst í Patta!

Vorum að fá spennandi vörulínur í hús

Vorum að fá spennandi vörulínur í hús

Vorum að taka inn kristalsvörur frá Julia Crystals. Mikið úrval af fallegum glösum, vösum og ýmsu öðru sem ekki er leiðinlegt að láta prýða jólaborðið og við önnur sparileg tækifæri.

Einnig höfum við fengið frábært úrval af gourmet vörum frá A L’olive. Að lokum má nefna Rice vörurnar en það eru heimilisvörur sem lífga upp á hversdaginn og sparidagana líka.